Sænski knattspyrnumaðurinn Viktor Gyökeres neitar að mæta á æfingar hjá félagsliði sínu Sporting.
Það er portúgalski miðillinn A Bola sem greinir frá þessu en Gyökeres, sem er 27 ára gamall, hefur verið orðaður við brottför frá félaginu í sumar.
https://www.mbl.is/sport/enski/2025/06/14/svinn_vill_ekki_ganga_i_radir_united/
Portúgalskir miðlar höfðu áður greint frá því að framherjinn hefði gert heiðursmannasamkomulag við forráðamenn félagsins um að hann mætti fara í sumar fyrir 70 milljónir punda.
Forráðamenn Sporting neita hins vegar núna að selja hann fyrir minna en 100 milljónir punda sem er riftunarákvæðið í samningi leikmannsins.
Hann hefur verið sterklega orðaður við Arsenal sem er tilbúið að borga 70 milljónir punda fyrir hann en framherjinn skoraði 54 mörk í 52 leikjum í öllum keppnum á síðustu leiktíð.