Ítalíumeistarar Napoli hafa boðið 30 milljónir evra eða yfir fjóra milljarða íslenskra króna í danska knattspyrnumanninn Matt O’Riley, leikmann Brighton.
Félögin eiga í viðræðum um leikmanninn en forráðamenn Brighton líta á O’Riley sem mikilvægan leikmann en eru reiðubúnir að hlusta á ásættanleg tilboð.
Félög í ensku úrvalsdeildinni sem og á Ítalíu fylgjast náið með Dananum en Napoli er sagt leiða kapphlaupið þessa stundina.
O’Riley, sem er 24 ára gamall, gekk í raðir Brighton í fyrrasumar frá Celtic í Skotlandi. Hann spilaði 21 leiki í deildinni og byrjaði ellefu af þeim. Hann meiddist þó snemma á tímabili og missti af miklu.