Inter Mílan frá Ítalíu og Monterrey frá Mexíkó gerðu 1:1-jafntefli í E-riðli á heimsmeistaramóti félagsliða í knattspyrnu í Pasadena í Bandaríkjunum nótt.
Bæði Inter og Monterrey eru með eitt stig í riðlinum. River Plate er á toppnum með þrjú stig en Urawa Reds er án stiga á botninum.
Spánverjinn Sergio Ramos, fyrrverandi leikmaður Real Madrid og París SG, kom Monterrey á 25. mínútu með góðum skalla.
Fyrirliðinn Lautaro Martínez jafnaði metin fyrir Inter rétt fyrir hálfleik og þar við sat.
Mamelodi Sundowns frá Suður-Afríku vann 1:0-sigur gegn Ulsan frá Suður-Kóreu í F-riðli í nótt.
Iqraam Rayners skoraði sigurmark Mamelodi Sundowns sem er á toppi riðilsins með þrjú stig. Ulsan er ekki með stig á botninum en Fluminense og Dortmund eru með eitt stig.