Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari enska karlalandsliðsins í knattspyrnu, var ósáttur með sína menn þrátt fyrir útisigur gegn Andorra í gær, 1:0.
England er á toppi riðils síns í undankeppni HM með fullt hús stiga og hefur liðið ekki enn fengið á sig mark. Þó hefur frammistaða liðsins ekki verið að heilla marga og tók Thomas Tuchel undir þá fullyrðingu í leikslok í gær.
„Ég var ekki hrifinn af hugarfari leikmanna undir lok leiksins. Ég var ánægður með menn í byrjun en ég var alls ekki sáttur við síðasta hálftímann,“ sagði Tuchel eftir leikinn.
Tuchel nefndi sérstaklega líkamstjáningu leikmanna sinna og lýsti leiknum eins og bikarleik þar sem sigurstranglega liðið áttar sig ekki á hættunni.
„Það vantaði upp á ákefð og að menn gerðu sér betur grein fyrir alvarleika þess að vera að spila í undankeppni HM. Þetta var ekki sú líkamstjáning sem ég vil sjá frá mínum leikmönnum í leik eins og þessum,“ sagði Tuchel.
„Við getum og verðum að gera betur, við vorum orkulausir. Við verðum bara að viðurkenna það og passa upp á að það gerist ekki aftur,“ sagði Tuchel og vildi ekki nota þreytu leikmanna sem afsökun fyrir spilamennskunni.
„Landsleikjagluggi er landsleikjagluggi. Engar afsakanir. Félögin eru ekki hrifin af þessum gluggum og leikmennirinir eru að klára langt tímabil. XG (áætluð mörk) hjá okkur var þrír en við skoruðum samt bara eitt mark. Vanalega eru mörkin hærri tala en XG í leikjum sem þessum vegna þess að gæðin eru svo mikið meiri hjá öðru liðinu. Það var ekki þannig hjá okkur í dag. Þetta var ekki nógu gott og við þurfum ekki að tala eitthvað í kringum það,“ sagði Tuchel að lokum.