Danski knattspyrnumaðurinn Christian Nörgaard er að ganga til liðs vð enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal.
Það er ítalski félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano sem greinir frá þessu en Nörgaard, sem er 31 árs gamall, hefur leikið með Brentford frá árinu 2019.
Forráðamenn Arsenal buðu tæplega 10 milljónir punda í leikmanninn á dögunum og var það tilboð samþykkt í dag.
Alls á hann að baki 196 leiki fyrir Brentford þar sem hann hefur skorað 13 mörk en hann hefur verið fyrirliði liðsins undanfarin ár.
Hann verður fyrsti leikmaðurinn sem Arsenal kaupir í sumar en honum er ætlað að fylla skarð Thomas Parteys sem er á förum þegar samningur hans rennur út um mánaðarmótin.