„Við spiluðum síðast vináttuleik við þær á Íslandi og það var mjög erfiður leikur,“ sagði Sveindís Jane Jónsdóttir, sóknarmaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu, um Finnland, sem verða fyrstu andstæðingar liðsins á EM 2025 í Sviss.
Ísland fékk Finnland í heimsókn á Laugardalsvöll sumarið 2023 og tapaði þá 1:2 í vináttulandsleik.
„Við vitum að Finnland hefur yfir góðu liði að skipa. Það er líka fullkomið fyrir okkur að þær hafi sömuleiðis spilað við Serbíu. Við getum skoðað þá leiki og gert okkur klárar fyrir leikinn gegn Serbíu.
Eftir hann einbeitum við okkur svo að leiknum við Finnland. Þá vitum við hvað við þurfum að gera til þess að vinna þetta góða lið sem Finnland býr yfir,“ sagði Sveindís í samtali við mbl.is eftir æfingu í Stara Pazova í Serbíu í morgun.
Ísland mætir þar heimakonum í vináttulandsleik á föstudag.
Styrkleikar þínir eru vel þekktir. Þú ert flink, hröð og getur lagt upp mörk með löngu innköstunum þínum. Muntu koma fótboltaheiminum á óvart með einhverju nýju?
„Ég vonast til þess að geta sýnt eitthvað nýtt en við munum bara sjá það þegar það skeður. Ég er mjög spennt fyrir þessu og það er mjög ánægjulegt að við getum stuðst við þessi innköst í okkar leik.
Við viljum samt ekki einungis reiða okkur á föst leikatriði. Við erum mjög góðar í þeim og viljum auðvitað nýta þau því við getum skorað úr þeim, þar á meðal innköstunum. Það er gott styrkleikamerki fyrir liðið og vonandi getum við nýtt þau vel á EM,“ sagði hún.
Sveindís skipti nýverið til Angel City í Bandaríkjunum eftir fjögurra ára dvöl hjá Wolfsburg í Þýskalandi. Fjöldi leikmanna hafa yfirgefið Wolfsburg í sumar og því von á miklum breytingum.
Spurð hvort hún væri leið yfir því að vera farin frá Wolfsburg sagði Sveindís:
„Það verður frekar nýtt lið sem Wolfsburg mun tefla fram á næsta tímabili. Það er auðvitað alltaf leitt að fara frá liði og vinum manns. Það tekur við nýr kafli hjá mér og að mínu mati var þetta rétti tímapunkturinn til þess að fara.
Ég átti frábæra tíma þar og einnig voru einhverjar lægðir þannig að ég er bæði hamingjusöm og leið. En ég er mjög spennt fyrir því sem framtíðin ber í skauti sér.“