16 ára Birgitta allt í öllu (myndskeið)

Birgitta Rún Finnbogadóttir og Rachel Diodati í leik Tindastóls og …
Birgitta Rún Finnbogadóttir og Rachel Diodati í leik Tindastóls og Víkings á síðasta tímabili. mbl.is/Arnþór

Hin 16 ára gamla Birgitta Rún Finnbogadóttir skoraði tvö mörk og lagði upp það þriðja þegar lið hennar Tindastóll vann öruggan 4:1-sigur á nýliðum FHL í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í Fjarðabyggðarhöllinni á föstudagskvöld.

Birgitta Rún lagði upp fyrsta mark leiksins fyrir Löru Margréti Jónsdóttur sem skoraði með þrumuskalla eftir laglegan sprett og fyrirgjöf þeirrar fyrrnefndu.

Christa Björg Andrésdóttir jafnaði svo metin eftir glæsilegan undirbúning Calliste Brookshire, sem klúðraði svo vítaspyrnu sem var dæmd eftir að Bryndís Rut Haraldsdóttir fékk boltann í höndina innan vítateigs.

Genevieve Crenshaw varði vítaspyrnu Brookshire vel.

Birgitta Rún lét þá til sín taka að nýju en hún skoraði fyrst með hnitmiðuðu skoti og fylgdi svo eftir eigin skoti áður en hin 17 ára gamla Elísa Bríet Björnsdóttir innsiglaði sigur Stólanna með fjórða marki gestanna.

Mörkin fimm ásamt vítaspyrnunni sem fór forgörðum má sjá hér:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »