Höfum alltaf verið góðar og sýnt gæði

Þróttarar fagna marki í kvöld.
Þróttarar fagna marki í kvöld. mbl.is/Hákon

„Mér fannst þetta verðskuldað,“ sagði Sæunn Björnsdóttir leikmaður Þróttar í samtali við mbl.is eftir sigur liðsins á Fram, 3:1, í Bestu deildinni í fótbolta í Úlfarsárdal í kvöld.

Þróttur var með 2:0 forystu í hálfleik og var sigurinn verðskuldaður, þrátt fyrir rólegri seinni hálfleik, þar sem liðin skoruðu sitt markið hvort.

„Fyrri hálfleikurinn var öruggur hjá okkur en í seinni hálfleik fórum við að vera svolítið passívar og fórum aftar á völlinn sem var óþarfi.

Þetta var samt heilt yfir fínt, þótt við höfum verið aðeins stressaðar í lokin þegar þær setja fleiri menn fram. Það var ákveðið bras. Mér fannst þetta samt verðskuldað og við sýndum mikla baráttu og liðsanda,“ sagði hún.

Sæunn Björnsdóttir
Sæunn Björnsdóttir mbl.is/Kristinn Magnússon

Þróttur hafði ekki tapað leik á tímabilinu er liðið mætti Val í bikarnum á dögunum. Sá leikur tapaðist og deildarleikur gegn Stjörnunni í kjölfarið. Voru það fyrstu tvö töp liðsins á leiktíðinni og var svarið í kvöld gott.

„Það var meiri ákefð og mikill vilji til að vinna. Við vorum frekar daufar í síðustu tveimur leikjum. Við vorum ekki nógu ákveðnar og það er þreyta og alls konar sem spilar þar inn í. Það voru margir leikir á sama tíma. Nú fengum við meiri tíma til að anda aðeins. Við ætluðum að klára þennan leik fyrir fríið.“

Þróttur er nú með þriggja stiga forskot á FH og Breiðablik sem eiga leik til góða. Gengið hefur ekki komið Sæunni á óvart.

„Við höfum alltaf verið góðar og sýnt gæði. Þetta kemur mér ekki á óvart. Við erum að smella saman og höfum fengið góða leikmenn inn í stöður sem við vorum ekki með í fyrra. Við hefur gefið gæfumuninn að fá leikmenn inn í ákveðin svæði.

Við fengum nýjan þjálfara í fyrra og erum að spila ný leikkerfi og alls konar. Það er ýmislegt sem spilar inn í. Við erum svo með góðan kjarna og það er haldið vel utan um þetta hjá okkur,“ sagði hún.

Leikurinn var sá síðasti hjá Þrótti í langan tíma, því frí verður gert á deildinni á meðan Evrópumótið í Sviss fer fram.

„Nú fer maður í frí. Flestir eru á leiðinni til útlanda að endurræsa sig. Það eru samt allir á prógrammi til að halda sér við og það er fullur fókus áfram á mótinu þótt við séum á leiðinni í frí,“ sagði Sæunn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »