Tindastóll lagði FHL 4:1 í 10. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í Fjarðabyggðarhöllinni í kvöld. Fyrri hálfleikurinn var tíðindalítill og var staðan 1:0 fyrir gestakonum í hálfleik. Fjögur mörk komu í seinni hálfleik og var það Tindastóll sem tók stigin þrjú.
Tindastóll kemur sér í 10 stig og er í sjöunda sæti eftir tíu umferðir en FHL er enn stigalaust á botninum.
Fyrri hálfleikurinn var í raun tíðindalítill. FHL var mun betra liðið en náði í raun ekki að skapa sér góð færi. Alveg gegn gangi leiksins náði Tindastóll að taka forystuna á 30. mínútu. Birgitta Rún Finnbogadóttir kom upp hægri vænginn með boltann og kom með hnitmiðaða fyrirgjöf beint á Löru Margrét Jónsdóttir sem skallaði boltann í vinkilinn.
FHL hélt áfram að gera sitt og var með mun fleiri færi eftir fyrri 45 en Tindastóll fór til búningsklefa með 1:0 forystu.
FHL hélt sínu spori áfram og náði að skora fimm mínútur inn í seinni hálfleik á 50. mínútu þegar Calliste Brookshire lék á varnarmann Tindastóls og kom með fyrirgjöf beint í fætur Christu Bjargar Andrésdóttir sem lagði hann í netið og staðan þá 1:1.
Á 65. mínútu fékk FHL víti þegar Björg Gunnlaugsdóttir á fyrirgjöf sem fór í hendina á Birgittu Rún, augljóst víti. Calliste steig upp og tók vítið en skotið var laust í vinstra hornið Genevieve Crenshaw las Calliste eins og opna bók, frábær varsla.
Gestakonur komust aftur yfir á 77. mínútu þegar María Dögg Jóhannesdóttir fékk boltann og kemur með langan bolta yfir vörn FHL beint á Birgittu sem tekur boltann niður og leggur boltann fallega í fjærhornið.
Birgitta Rún var aftur á ferðinni á 87. mínútu þegar Hrafnhildur Salka Pálmadóttir átti sendingu í gegn á Birgittu sem átti skot sem var varið, hún fékk frákastið og skoraði svo í autt markið. Tindastóll skoraði aftur á 89. mínútu þegar Keelan Terrell gaf boltann á Elísu Bríeti Björnsdóttur sem lék á einn varnarmann og setti boltann í autt markið. Lokatölur 4:1.