Var rauða spjald Valsarans verðskuldað? (Myndskeið)

Örvar Logi Örvarsson úr Stjörnunni og Kristinn Freyr Sigurðsson úr …
Örvar Logi Örvarsson úr Stjörnunni og Kristinn Freyr Sigurðsson úr Val í baráttunni. mbl.is/Ólafur Árdal

Bjarni Mark Duffield Antonsson fékk beint rautt spjald í tapi Vals fyrir Stjörnunni, 3:2, í elleftu umferð Bestu deildarinnar í fótbolta í Garðabænum síðasta laugardagskvöld. 

Bjarni tók Örvar Eggertsson niður þegar Stjörnumaðurinn var að sleppa í gegn og Þórður Þorsteinn Þórðarson gaf leikmanninum beint rautt spjald. 

Bjarni Mark Duffield Antonsson var rekinn af velli gegn Stjörnunni.
Bjarni Mark Duffield Antonsson var rekinn af velli gegn Stjörnunni. mbl.is/Karítas

Jóhann Árni Gunnarsson, Emil Atlason og Guðmundur Baldvin Nökkvason skoruðu mörk Stjörnunnar í leiknum en Patrick Pedersen skoraði bæði mörk Valsmanna. 

Mörkin, rauða spjaldið og svipmyndir úr leiknum má sjá á YouTube-síðu Bestu deildarinnar hér að neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »