Vestri tók á móti Þór frá Akureyri í átta liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta á Ísafirði í kvöld. Leikurinn endaði með 2:0 sigri Vestra. Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs mætti í viðtal og var spurður út í fyrstu viðbrögð eftir leik.
„Ég er svekktur. Við spilum ágætis fyrri hálfleik en gefum þeim tvö mörk með stuttu millibili, slökkvum á okkur. Í seinni hálfleik fannst mér við spila vel og við náðum að ógna þeim. Mér fannst við eiga skilið að skora eitt mark í það minnsta.“
Eins og þú segir spilið þið heilt yfir góðan leik, en hefurðu útskýringu á því hvað gerist á þessum fimm mínútum þegar þið fáið á ykkur tvö mörk?
„Einbeitingarleysi, þeir skora fyrst úr föstu leikatriði sem við eigum að verjast betur. Síðan er seinna markið alltof auðvelt, hár bolti yfir okkur og þeir skora.“
Ertu ekki bjartsýnn á framhaldið miðað við spilamennskuna hérna í dag?
„Við erum búnir að spila betur en stigasöfnunin í sumar sýnir. Hins vegar ef við spilum eins og við gerðum hérna í seinni hálfleik þá munu stigin koma. Þrátt fyrir að við höfum dottið hérna út í dag fer ég bjartsýnn héðan,“ sagði Sigurður Heiðar að lokum.