„Ólöglegt“ mark kláraði leikinn

Sölvi Geir Ottesen á hliðarlínunni í kvöld.
Sölvi Geir Ottesen á hliðarlínunni í kvöld. mbl.is/Ólafur Árdal

Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkings var að vonum svekktur er hann mætti í viðtal til mbl.is eftir 3:1-tap sinna manna gegn Breiðabliki í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld.

„Við vorum ekki tilbúnir strax í þetta í fyrri hálfleiknum. Við vorum dálítið að klikka á pressunni okkar og pressuðum ekki eins stíft og ég vildi sjá liðið og við lögðum upp með.

Við vorum líka ekki nógu djarfir og hugrakkir á boltanum. Það voru fullt af möguleikum til að spila frá marki eða halda betur í boltann og mér fannst við ekki nýta þessar stöður nógu vel í leiknum.

Breiðablik gekk á lagið og skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik, tvö klaufamörk á okkur. Við hefðum mjög auðveldlega geta spilað út frá marki í fyrra markinu. Í seinna markinu klikkuðum við eftir fast leikatriði. Þá kemur seinni boltinn inn í teiginn aftur og við erum að bíða og sjá hvað gerist í staðinn fyrir að vera á tánum,“ sagði Sölvi í samtali við mbl.is eftir leik.

Breiðablik bætti við þriðja marki sínu snemma í síðari hálfleik. Sölvi telur markið vera ólöglegt vegna brots og rangstöðu.

„Mér fannst við koma inn í seinni hálfleikinn af meiri krafti en þá fá þeir þetta þriðja mark sem slekkur aðeins í okkur. Þá verður mun erfiðara að koma til baka í stöðunni 3:0. Mark sem ég tel vera ólöglegt, það er bæði brot og rangstaða í því marki,“ sagði Sölvi.

Gerist þegar topplið mætast

„Þetta var ekki okkar dagur. Stundum er það bara þannig að þetta dettur meira fyrir andstæðinginn eins og mér fannst í dag. Í heildina þá var þetta mjög jafn leikur og þó að þeir skoruðu þrjú mörk og við eitt þá nýttu þeir stöðuna sína betur en við gerðum. Þetta gerist þegar tvö topplið eru að mætast, stundum fellur þetta öðru megin,“ sagði Sölvi.

Það er stutt á milli leikja hjá ykkur, þið spilið fyrir vestan fyrir þremur dögum. Fannst þér vera orkuleysi í hópnum í dag?

„Ég tel þetta ekki vera orkuleysi. Ég veit það ekki, stundum gerist það að það er meiri orka hjá hinum. Það var minni orka en ég hefði viljað sjá hjá okkur. Hver ástæðan er, er mjög erfitt að segja. Ég væri mjög ríkur maður ef ég vissi nákvæmlega ástæðuna á bakvið það af hverju orkuleysi hjá mönnum er mismunandi,“ sagði Sölvi.

Þrátt fyrir tapið í kvöld situr Víkingur á toppi deildarinnar. Sölvi er sáttur með tímabil sinna manna.

„Yfirhöfuð er ég mjög sáttur með hvernig liðið er búið að spila. Við erum búnir að lenda í mikið af meiðslum, við erum að koma úr rosalega erfiðu og krefjandi tímabili í fyrra og skrítnu undirbúningstímabili.

Ég er búinn að vera mjög sáttur með þá og ég var sáttur með hvernig þeir héldu alltaf áfram. Þeir eru alltaf tilbúnir að hlaupa og berjast og þeir gerðu það allan leikinn. Mörg lið hefðu koðnað í þessari stöðu, 3:0 undir. Við héldum áfram og ætluðum okkur að koma til baka en það gekk ekki eftir,“ sagði Sölvi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »