Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Elías Jónatansson, forstjóri Orkubús Vestfjarða, hafa undirritað samning um orkuskipti í Flatey.
Þetta kemur fram í tilkynningu Stjórnarráðsins.
Samningurinn leggur grunninn að nýtingu fjölbreyttra endurnýjanlegra orkugjafa í raforkukerfi eyjarinnar og mun draga verulega úr notkun jarðefnaeldsneytis við framleiðslu raforku. Gert er ráð fyrir að með orkuskiptaaðgerðunum verði hægt að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis um 62%.
Alls styrkir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið verkefnið um 215 milljónir króna, en með því verður greidd leið grænna sveiflukenndra orkugjafa á borð við sólar- og vindorku.
Meðal þeirra orkuskiptaaðgerða sem ráðist verður í strax í ár er bygging rafstöðvarhúss og uppsetning birtufleka (sólarrafhlaðna) á þaki hússins. Í kjölfarið verður á næsta ári farið í frekari framkvæmdir við stærra sólarorkuver í Flatey, en rafhlöður verða miðjan í nýju orkustjórnunarkerfi eyjarinnar.
Áætlað er að framleiðsla þessara tveggja sólarorkuvera muni standa undir um 35% af orkuþörf eyjarinnar. Sólarorka hentar vel í Flatey þar sem raforkuþörf er mest þegar sólin er hæst á lofti.
Orkubú Vestfjarða hefur umsjón með framkvæmdinni og er horft til þess að afhending raforku geti hafist strax á næsta ári.
„Samningurinn er mikilvægur áfangi og stórt skref í átt að orkusjálfbærni og útfösun jarðefnaeldsneytis í Flatey,” er haft eftir Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í tilkynningunni.