Ráðherra rekur út úr sér tunguna

Sam­fé­lags­miðlar ís­lensks stjórn­mála­fólks eru alltaf und­ir smá­sjá og því sem þar fer fram gert skil með reglu­bundn­um og skemmti­leg­um hætti í Spurs­mál­um. Yf­ir­ferðina má sjá í meðfylgj­andi mynd­skeiði eða í rituðu máli hér að neðan.

Allt á suðupunkti á Alþingi

Í vikunni var allt á suðupunkti á Alþingi og lá samfélagið gjörsamlega á hliðinni samhliða því. Eða ekki því stórum hluta þjóðarinnar er bara alveg slétt um það sem er að gerast í leikskólanum við Austurvöll.

Það sem hægt er að jagast, kýta og karpa um ekki rassgat í bala á kostnað almennings. Það er alla vega upplifun meirihlutans að tvöföldun veiðigjalda sé ekkert til að tala um og að minnihlutinn hafi engan áhuga á að komast í sumarfrí. Heldur sé hann bara eitthvað of upptekinn við að skila vídjóspólu og babbla eitthvað út í tómið um eitthvað sem engu máli skiptir.

Ég veit ekki hvor fylkingin er að kveina meira þessa dagana, meiri- eða minnihlutinn. Þetta virðist bara vera orðinn einn stór spangólandi vælukór. Dæmi hver fyrir sig. Hvar er Birgir Ármannsson þegar maður þarf á honum að halda? Hann væri löngu búinn að siga stóðinu í sumarfrí. Ég held að hann þurfi nú eitthvað að fara kenna Þórunni Sveinbjarnardóttur að klæða sig í pung.

Inga Sæland í miklu stuði

Okkar ástkæra Inga amma fór mikinn á samfélagsmiðlunum í vikunni, enda var hún starfandi forsætisráðherra á meðan K-Frost fór utan að hitta nýja besta vin sinn, Donald Trump, og þurfti Inga að sjálfsögðu að nýta sér gluggann og láta gamminn geysa sem aldrei fyrr.

Sumir vilja meina að hún hafi verið búin að væta á sér kverkarnar vel áður en hún skrifaði þessar 36 Facebook-færslur um ræður stjórnarandstöðunnar, kominn sumarfrísfílingur í okkar konur, með snjallsímann í lófanum og sjampó og sangríu á kantinum. Ég veit ekki hvort það var það eða móðan á brillunum sem ollu því að edita þurfti sumar færslurnar fjórum sinnum eða oftar. Ég meina má maður aðeins?

Sigmar Guðmundsson líka léttur

Simmi Gumm var líka léttur að vanda og í sama í stuði og Inga, held hann hafi samt látið sjampóið og sangríuna vera, Guði sé lof, annað væri náttúrulega harmleikur. En hann hafði sérstaklega gaman að því að hlusta á tilþrif vina sinna Þórarins Inga sem flestir þekkja sem Þinga lífstílsbónda, og kynjakvótaprinsins Jens Garðars. „Watch and learn“ er sennilega það sem Simmi er að reyna tileinka sér þessa dagana.

Hanna Kata brandarakerling

„The queen of“ hækkun veiðigjalda, Hanna Katrín Friðriksson „herself“, var ekkert eðlilega hnyttin og fyndin á Facebook á dögunum þegar hún póstaði færslu um hina raunverulegu merkingu á hugtakinu málþóf. Þetta var bara svona færsla sem átti heima hjá fyndna fólkinu á Twitter árið 2018. Hún er svo sniðug og skemmtileg hún Hanna Kata.

Þórður Snær í hrósgír

Já og þýska stálið, „aka“ Þórður Snær, hann fann sig líka knúinn til að vola og kveina aðeins um veiðigjaldafrumvarpið en hann er svo geggjað næs gaur og hampaði að sjálfsögðu meirihluta atvinnuveganefndar fyrir vel unnin störf. Svona á að gera þetta.

Heiða Björg veiðikló

Heiðvirtasti borgari landsins, Heiða Björg borgarstjóri, skellti sér í laxveiði utan borgarmarkana og raðaði inn einhverjum geggjað gúrme norskum eldislöxum. Þeir fiska svo sannarlega sem róa! En ætti samt ekki líka að fara rukka meira fyrir stangveiði? Jú, klárlega. Það þarf að fita ríkiskassann svolítið á kostnað einstaklinga. Enn ekki hvað!

Bryndísi ekki skemmt í ræðustól

Bryndísi Haralds líst ekkert á grínistana í stjórnarmeirihlutanum. Það er bara hún sem má vera með grín og glens, ekki aðrir. Höfum það á hreinu. Hún er með einkarétt á gamanseminni svo vinsamlegast hættið að stíga á tær hennar takk.

Logi rekur út úr sér tunguna

Logi Einarsson menningarráðherra nennir ekki að hlusta á þetta síendurtekna raus í Bryndísi eða öðrum vælukjóum í minnihlutanum og svarar volinu svona: nan na na na bú bú - prump. Og rekur út úr sé tunguna við minnsta tilefni. Eða öllu heldur unnar hann framan í allt og alla eins og þeir segja víst þarna norðanheiða þegar einhver ullar á einhvern. Akureyringar eru svo sérstakir.

Logi Einarsson unnar framan í fólk.
Logi Einarsson unnar framan í fólk. Samsett mynd

Draumaþrennan Kristrún, Jóhanna og Trump

K-Frost Jordan hefur mikið verið að tjilla með eldri borgurum síðustu daga og temja sér siði þeirra sem eldri og reynslumeiri eru, enda eru lítil börn eins og leir í höndum þeirra sem eldri eru, við höfum farið yfir þetta áður. Á Kvenréttindadaginn fagnaði hún 110 ára kosningaréttarafmæli kvenna með Jóhönnu Sigurðardóttur sem þó er ekki alveg orðin 110 ára þó einhverjir hafi haldið að það og svo fór K-Frost á vinafund með uppáhalds heldri borgara heimsbyggðarinnar hinum eina sanna Donna Trump.

Nýjasta stjörnuþríeykið 

Togga Gunn fékk að fara með K-Frost í ferðina og sagðist í kvöldréttum á dögunum hafa legið alveg kylliflöt fyrir sjarmatröllinu Trump og nú eru þau öll þrjú alveg geggjað góðir vinir. Nýjasta stjörnuþríeyki heimsins. Appelsínugult eðlufólk er nefnilega líka fólk sko. Togga og K-Frost vita það alveg upp á hár enda gera þær varla annað en að fagna fjölbreytileikanum. Það er ekkert lát á þeim fögnuði hjá þeim.

Snúlli að snúllast á TikTok

Þegar Snúlli okkar Másson er ekki að fara með gamanmál í ræðustól Alþingis þá er hann að skrolla TikTok eins og fólk á hans aldri á að vera að gera og finna TikTokara sem ekki eru sammála hans hugsjónum og kistuleggja það í beinni. Samt alltaf mesti snúllinn, það vitum við.

Spænski folinn Jens Garðar

Jens Garðar Helgason sem nú er kallaður Jóse Carlos Fabricio er drengur góður og kann að biðjast fyrirgefningar þegar hann hleypur á sig. Það gerði hann á dögunum þegar hann hafði farið með fleipur um skattamál Venesúelabúa. Ekki vissi ég að hann væri flúent í spænsku. Hélt kannski að hann væri rétt mellufær í spænsku og kynni í mesta lagi að segja: „uno grande cerveza por favor“. 

José Carlos Fabricio eða Jens Garðar Helgason í ræðustól

Ása Berglind siðar villidýrin til

Í vikunni lagði nýliðinn Ása Berglind öllum villidýrunum á Alþingi línurnar um þingsköp og sagðist hún aldrei hafa orðið vitni að öðrum eins dýragarði og nú. Enda er hún bara „brand new bombshell in the villa“ eins og maður segir. Vonandi heldur hún ekki að þetta bestni, því þetta er alls ekki að fara gera það úr þessu.

Jón Gnarr þarf að fara komast úr jakkanum

ÍR-ingurinn Jón Gnarr er orðinn óþreyjufullur og þarf að fara komast í sumarfrí. Hann er orðinn hundleiður á því að klæðast jökkum því það gerir hann aldrei eftir sumardaginn fyrsta í apríl. Hversu lengi á hann að bíða eftir því að geta klætt sig í þessum helvítis jakka? Fram á þriðjudagskvöld? „Really guys“ það er löngu komið sumar.

Rotnar rætur burt úr Valhöll

Ísdrottningin heldur áfram með tiltektina í Valhöll og ákvað í vikunni að rífa í burtu gamlagrónar og rotnar rætur í Valhöll. En hún er ekki kölluð ísdrottningin fyrir ekki neitt. Hún veit hvernig á að vinna fólk til sín, létta andann og kæla fólk niður. ICE GUYS ís á línu og allir sáttir og sælir.

Hildur tefldi við páfann 

Elskulega Hildur Sverris skellti sér til Rómar á dögunum til að hitta fyrir hann Leó Páfa og biðja hann um að blessa Alþingi Íslendinga. Hann er ekkert eðlilega mikið krútt. Ég ætla sko að skíra barnið mitt í höfuðið á honum því hann er svo sætur. Pope Leó varð við bón Hildar og nú verður allt betra. Þinglok eru í nánd og sumarið í þann mund að fara umvefja okkur með hlýju, birtu og il. Nú hoppum við hýr á brá út í blíðuna og njótum þess að vera til. Þangað til næst!

Nýjasti þáttur Spursmála er í heild sinni aðgengilegur í spilaranum hér að neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »