Vonast til að leysa mönnunarvanda með nýrri úttekt

Á síðasta skólaári þurftu 55 af 67 leikskólum borgarinnar að …
Á síðasta skólaári þurftu 55 af 67 leikskólum borgarinnar að grípa til aðgerða vegna fáliðunar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ekki er fyrirséð hvernig Reykjavíkurborg ætlar að mæta mönnun á tæplega 2.000 nýjum leikskólaplássum sem stefnt er á að bæta við á næstu árum.

Vinna er hafin hjá borginni þar sem farið er yfir leikskólakerfið í heild. Vonir standa til að það muni hafa jákvæð áhrif á mönnunarvandann og tíðni fáliðunar á leikskólum borgarinnar. 

Þetta kemur fram í svari Hjördísar Rutar Sigurjónsdóttur, upplýsingafulltrúa skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, við fyrirspurn mbl.is. 

Töluvert hefur verið fjallað um mönnunarvanda á leikskólum borgarinnar síðastliðin ár. Á síðasta skólaári þurftu 55 af 67 leikskólum borgarinnar að grípa til aðgerða vegna fáliðunar. 

Haft áhrif á tæplega 70% leikskólabarna

Senda þurfti 3.640 börn heim á umræddu tímabili þar sem grípa þurfti til lokunar, heilan dag eða hluta úr degi, 190 daga síðasta skólaárs. 5.500 börn eru með vistun á leikskólum borgarinnar sem þýðir að fáliðun síðasta skólaárs hafði áhrif á tæplega 70% leikskólabarna í borginni. 

Greint var frá því í maí að borgarráð hefði samþykkt tillögur spretthóps borgarstjóra um aukna leikskólauppbyggingu sem gætu skilað allt að 1.987 nýjum leikskólaplássum á næstu fimm árum. Verði af þessu myndi fjöldi leikskólaplássa hjá borginni aukast um þriðjung. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »