Tölvupóstar sem minna á hin alræmdu Nígeríubréf

Netglæpir eru algengari á sumrin.
Netglæpir eru algengari á sumrin. AFP

Tæplega 200 mál tengd netglæpum hafa borist lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu það sem af er þessu ári, eða rúmlega 33 mál á mánuði að meðaltali. Tíðni netsvika eykst yfir sumartímann og þarf landinn því að hafa varann á, sérstaklega á þessum tíma.

Lögreglan bendir á að þessi fjöldi endurspegli líklega aðeins lítinn hluta af raunverulegum fjölda netglæpa, þar sem reynslan hérlendis og á Norðurlöndum sýnir að flest slík brot eru ekki tilkynnt.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Alls kyns gerðir af netglæpum áberandi

Fram kemur að fjölbreytt form netglæpa hafi verið áberandi síðustu vikur. Þar má nefna svokölluð svika-SMS, gjafaleiki á Facebook, símtöl þar sem fólki er talin trú um að vandamál sé í tölvum þeirra og ekki síst tölvupósta sem minna á hin alræmdu Nígeríubréf.

Lögregla varar einnig við fjárfestingasvikum en áfram berast tilkynningar um mál þar sem einstaklingum er boðin aðstoð við að fjárfesta í rafmynt.

Í slíkum tilfellum biðja brotamenn þolendur gjarnan um að hlaða niður forritum í síma eða tölvur sínar, sem síðan eru notuð til að komast yfir viðkvæmar upplýsingar.

Blekkingar með rafrænum skilríkjum

Þá hefur lögregla fengið tilkynningar um tilraunir til að blekkja fólk til að samþykkja rafræn skilríki án þess að það sé sjálft að reyna að skrá sig inn.

Lögreglan áréttar að aldrei eigi að samþykkja innskráningu með rafrænum skilríkjum nema menn séu fullvissir um tilganginn.

„Það er líka mikilvægt að árétta að til að taka á móti greiðslum þarf ekki að samþykkja rafræn skilríki,“ segir í tilkynningu.

Netglæpir færast í aukana yfir sumartímann

Fyrirtæki hafa einnig orðið fyrir barðinu á netglæpamönnum. Lögregla hefur fengið tilkynningar og kærur frá fyrirtækjum sem eru að fá tölvupósta, meðal annars þar sem brotamenn komast inn í tölvupóstsamskipti milli söluaðila og kaupanda og senda falsaða reikninga eða breyta bankaupplýsingum vegna reikninga.

Lögreglan hvetur fólk til að sýna sérstaka aðgát yfir sumarmánuðina þar sem reynslan sýnir að netglæpir taki þá aukið flug.

Þeir sem verða fyrir slíku broti eru hvattir til að hafa tafarlaust samband við viðskiptabanka sinn og lögreglu á netfangið [email protected]. Mikilvægt sé að tilkynna brot eins fljótt og auðið er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »