Segir dóminn veita tjáningarfrelsinu vörn

Páll Vilhjálmsson og Aðalsteinn Kjartansson.
Páll Vilhjálmsson og Aðalsteinn Kjartansson. Samsett mynd/mbl.is/Eggert Jóhannesson

Páll Vil­hjálms­son, pistla­höf­undur og fyrr­ver­andi blaðamaður, segist þakklátur að Landsréttur skuli hafa tekið málstað tjáningarfrelsisins í máli Aðalsteins Kjartanssonar, blaðamanns á Heimildinni, gegn honum.

„Ég er vitanlega mjög ánægður með dóminn, ég held að hann sé réttur. Aðalatriðin voru þau að mínu mati, hvort það mætti gagnrýna blaðamenn líkt og blaðamenn hafa uppi gagnrýna umfjöllun, og dómurinn staðfesti það,“ segir Páll í samtali við mbl.is.

„Þetta er mjög áhugavert mál út frá mörgum sjónarmiðum, blaðamennskufagsins, lögfræðilega og í refsirétti og fleira.“

Unnendur málfrelsis ættu að vera þakklátir

Líkt og greint hefur verið frá sýknaði Lands­rétt­ur Pál í dag af kröf­um Aðal­steins um ómerk­ingu fjöl­margra um­mæla og greiðslu miska­bóta vegna færslna sem birt­ust á bloggsíðu Páls frá apríl 2022 til apríl 2023, eftir að hann áfrýjaði niðurstöðu Héraðsdóms, sem hafði dæmt Aðalsteini í vil.

Páll full­yrti meðal ann­ars í færslunum að Aðal­steinn hefði átt aðild að byrlun og þjófnaði á síma Páls Stein­gríms­son­ar skip­stjóra í tengsl­um við um­fjöll­un um fyrirtækið Sam­herja og hef­ur málið verið kallað byrlun­ar­málið.

Páll segir dóminn sem birtist í dag sýna fram á að það megi „í góðri trú halda því fram að blaðamenn eigi aðild að byrlunar- og símamálinu, þar sem Páli Steingrímssyni skipstjóra var byrlað“.

Hann segir dóminn veita tjáningarfrelsinu ákveðna vörn sem hann er mjög þakklátur fyrir og telur „að allir unnendur málfrelsis ættu að vera“.

„Vona að það komi ekki aftur högg frá þeim sem síst skyldi“

Í samtali við mbl.is fyrr í dag sagði Aðalsteinn niðurstöðuna vera von­brigði og að ekki sé deilt um það að það sem Páll hefði skrifað hefði verið vit­leysa. Niðurstaðan fel­i í sér að af því að hann sé blaðamaður þá megi segja hvað sem er og saka hann um al­var­leg lög­brot sem þó ligg­i fyr­ir að hann eigi enga aðild að – og hef­ur ekki verið sýnt fram á að hafi verið fram­in.

Sagðist hann þá hafa hlýtt á langa ræðu lög­manns Páls þar sem eng­in til­raun hefði verið gerð til að sýna fram á að neitt af því sem Páll hefði skrifað um Aðal­stein væri satt, heldur hefði málið snúist um hvort það mætti segja ósatt.

Aftur á móti segir Páll málflutning lögfræðings síns, Sigurðar Guðna Guðjónssonar, hafa gengið út á það að Páll hefði næg tilefni í fyrirliggjandi gögnum til að skrifa það sem hann gerði.

„Það er auðvitað mjög undarlegt að blaðamenn gangi fram og reyni að takmarka málfrelsið. Þetta er í annað sinn, af sama tilefni, sem mér er stefnt fyrir dóm af blaðamönnum. Áður höfðu Þórður Snær Júlíusson og Arnar Þór Ingólfsson stefnt mér og þá var niðurstaðan sama, að ég tapaði í Héraðsdómi en Landsréttur leiðrétti þann dóm og sýknaði mig í báðum tilfellum,“ segir Páll.

„Þannig að ég er mjög ánægður með það og vona að það komi ekki aftur högg frá þeim sem síst skyldi á tjáningarfrelsið, það er að segja frá blaðamönnum.“

Byrlunarmálinu linni þegar blaðamenn geri hreint fyrir sínum dyrum

„Dómurinn sem var birtur í dag segir að þeir sem telja blaðamenn eiga aðild að málinu séu í góðri trú. Það eru hreinlega það mikil gögn sem liggja fyrir sem tengja blaðamenn við málið,“ segir Páll.

Annað sé höfuðatriði, að byrlunarmálinu svokölluðu linni þegar blaðamenn geri hreint fyrir sínum dyrum.

„Þegar þeir útskýra fyrir lesendum, fyrir þjóðinni, hvernig þeir komu að málinu. Útskýra í samræmi við þekktar staðreyndir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »