Halla heiðrar Vísindaskóla unga fólskins

Sigrún Stefánsdóttir, skólastjóri Vísindaskóla unga fólksins ásamt Dönu Rán Jónsdóttur, …
Sigrún Stefánsdóttir, skólastjóri Vísindaskóla unga fólksins ásamt Dönu Rán Jónsdóttur, verkefnastjóra Vísindaskólans. Ljósmynd/Axel Darri Þórhallson

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, mun á morgun með nærveru sinni heiðra nemendur Vísindaskóla unga fólksins á útskrift þeirra sem fram fer við Háskólann á Akureyri. Vísindaskólinn, sem rekinn er af Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri, hefur nú starfað í ellefu ár og notið sívaxandi vinsælda.

„Við erum alltaf með nýtt prógramm á hverju ári til þess að tryggja að krakkarnir fái ferska og fjölbreytta upplifun,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, skólastjóri Vísindaskólans, en hún og Dana Rán Jónsdóttir, verkefnastjóri, standa fyrir starfsemi skólans.

„Nemendur geta komið þrjú ár í röð, frá ellefu til þrettán ára, og alltaf upplifað eitthvað nýtt. Fyrst vorum við með eitt þema fyrir allan daginn en núna skiptum við um hádegi til þess að nemendur og kennarar komi ferskir inn í seinni hlutann,“ segir Sigrún í samtali við mbl.is.

Skólinn hefur notið sívaxandi vinsælda en í ár voru 85 …
Skólinn hefur notið sívaxandi vinsælda en í ár voru 85 ungmenni sem komust að. Ljósmynd/Axel Darri Þórhallson

Nemendur koma víða að

Vísindaskólinn stendur yfir í eina viku í júní og eru nemendur alls staðar að, sumir jafnvel erlendis frá. „Það er mjög algengt að amma og afi skrái börnin í þessa viku hjá okkur og dekri svo við þau þegar skóladegi lýkur,“ segir Sigrún.

Hún bætir við að þátttakan hafi aldrei verið meiri og þurfti jafnvel að vísa áhugasömum frá í ár vegna mikillar eftirspurnar. Við val á kennurum er lagður mikill metnaður í að fá fremsta fólk á sínu sviði, en í fyrra kenndi m.a. Stjörnu-Sævar.

„Rúsínan í pylsuendanum á morgun verður svo koma Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, sem mun afhenda nemendum glæsilega trjáplöntu sem nefnist Hrymur, víxlfrjóvgaða tegund Evrópu- og Rússalerkis. Við vonum að þau fari heim og planti þessum plöntum,“ segir Sigrún.

Dagskrá hvers dags er fjölbreytt og ekkert ár er eins …
Dagskrá hvers dags er fjölbreytt og ekkert ár er eins í Vísindaskóla unga fólksins. Ljósmynd/Axel Darri Þórhallson

Leggja krefjandi spurningar fyrir forsetahjónin

Nemendur munu einnig leggja spurningar fyrir forsetann í sérstakri hraðaspurningalotu á athöfninni, þar sem þau spyrja meðal annars um hvað henni finnist um börn, íþróttaáhuga hennar, hvort að Björn sé skemmtilegur, sælgætisvenjur og stjórnmálaskoðanir.

Eiginmaður forsetans, Björn, verður einnig spurður um hvernig það sé að vera kvæntur forseta og hvort forseti geti farið í handahlaup.

Hátíðleg útskrift með öllu tilheyrandi

Sigrún segir útskriftina hátíðlega, með öllum helstu einkennum hefðbundinnar skólaútskriftar. „Þau fá t.a.m. útskriftarskjal, rektor er í skikkjunni, nemendur flytja ávarp og frumsamda tónlist. Þetta er alveg alvara og mikilvægur hluti af upplifuninni.“

Vísindaskólinn býður upp á fjölbreytta dagskrá dag hvern þar sem nemendur öðlast reynslu af því að gera tilraunir, rannsaka náttúruna, læra um ljósmyndun, gervigreind og þróun mannsins.

„Við viljum að nemendur fái aðra nálgun á þekkingu en þá sem þau venjast í hefðbundnu skólastarfi. Hér er áhersla lögð á verklega þáttinn, þau gera hlutina sjálf og öðlast þannig dýpri skilning. Við sjáum það á krökkunum að þau mæta í skólann á haustin með þekkingu sem aðrir hafa kannski ekki og eru að slá í gegn,“ útskýrir Sigrún.

Einbeiting í hámarki.
Einbeiting í hámarki. Ljósmynd/Axel Darri Þórhallson

Eftirspurnin fer vaxandi

Félagsskapurinn sem skapast í Vísindaskólanum er einnig mikilvægur þáttur, en nemendur eignast gjarnan vini víðs vegar að af landinu og víðar, jafnvel eftir margra ára hlé á samskiptum.

Aðspurð um framtíð skólans segir hún að stöðugt sé unnið að þróun hans.

„Við erum alltaf að reyna að gera betur. Hugmyndir fyrir næsta ár eru þegar komnar vel á veg og eftirspurnin fer vaxandi. Þetta hefur svo mikið gildi fyrir krakkana að ég get ekki hugsað mér að þetta leggist af. Við höldum áfram að þróa og efla þetta mikilvæga starf,“ segir Sigrún að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »