Hóf lækkun of seint vegna mannlegra mistaka

Eðlilegt þykir að hefja lækkun um 100 sjómílur frá lendingarflugvelli …
Eðlilegt þykir að hefja lækkun um 100 sjómílur frá lendingarflugvelli eða tæplega 200 kílómetrum frá. Ljósmynd/Icelandair

Aðflug vélar Icelandair frá New York til Keflavíkur 22. maí siðastliðinn var óhefðbundið í þeim skilningi að vélin hóf ekki lækkun fyrr en um 30 til 40 kílómetrum frá Keflavíkurflugvelli. Eðlilegt þykir að hefja lækkun um 100 sjómílur frá lendingarflugvelli eða tæplega 200 kílómetrum frá.

Mannleg mistök urðu til þessa, engin hætta var á ferðum en flugstjóri og flugmaður breyttu aðflugi, hófu lækkun og lengdu aðflug að hefðbundinni lendingu.

Flugstjóri og flugmaður breyttu aðflugi, hófu lækkun og lengdu aðflug …
Flugstjóri og flugmaður breyttu aðflugi, hófu lækkun og lengdu aðflug að hefðbundinni lendingu. Skjáskot/Flightradar24

Heiðarleg mistök og innsláttarvilla

Guðmundur Tómas Sigurðsson, flugrekstrarstjóri Icelandair, segir atvikið hálfgert einsdæmi hjá flugfélaginu. Öryggisdeild félagsins hafi farið yfir atvikið, þrátt fyrir að í flugheimi þess hafi ekki verið um merkilegt atvik að ræða, þótt það hafi verið óhefðbundið.

Útskýrir Guðmundur, aðspurður, að vélin sé með flugleiðsögubúnað þar sem hægt sé að slá inn allar upplýsingar um hæðir og vegalengdir og út frá þeim gögnum reikni búnaðurinn út hvenær eigi að hefja lækkun í átt að flugvelli.

„Hann reiknar ákveðna fjarlægð frá velli og segir að hér eigi að hefja aðflug. Það sem gerist er að það verða heiðarleg mistök og innsláttarvilla er gerð inn í flugleiðsögubúnaðinn og þannig reiknar tölvan út þennan lækkunarpunkt seinna - nær Keflavík,“ segir hann.

Svo hafi menn gert sér grein fyrir mistökunum og hafi þá tekið fram fyrir hendurnar á tölvunni, ef svo má segja, hafið lækkun og lengt aðeins í aðfluginu.

„Svo koma menn bara inn og lenda venjulega. Það var algjörlega hefðbundin lending og ekkert óeðlilegt við það og engin hætta varð af.“

Hér má sjá hvernig eðlilegt aðflug vélarinnar hefði átt að …
Hér má sjá hvernig eðlilegt aðflug vélarinnar hefði átt að vera. Skjáskot/Flightradar24

Öryggisdeild telur málinu vera lokið

Guðmundur segir félagið búa yfir verkferlum til að samlesa og staðfesta allar breytingar sem eiga sér stað á innslætti í flugleiðsögubúnaðinn. Í kjölfarið á atvikinu hafi öryggisdeild félagsins óskað eftir því að menn sendu inn upplýsingar um hvað hafi farið úrskeiðis með það fyrir augum að mögulega væri hægt að læra af atvikinu.

„Öryggisdeildin yfirfór atvikið og eftir samtal við einstaklingana lítur hún svo á að málinu sé lokið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »