Óljóst er hvort mikið tjón hafi orðið inni í þvottahúsinu Fönn þar sem eldur kviknaði fyrr í kvöld. Slökkviliðinu gekk greiðlega að slökkva eldinn og takmarkað tjón varð af honum. Hins vegar var slökkvikerfi sem úðaði vatni sem fór í gang auk þess sem talsverður reykur barst um húsnæðið.
„Tjónið er svolítíð óljóst. Það var mjög mikill reykur á staðnum sem við ræstum út en í sjálfu sér var ekki mikið tjón af eldinum sjálfum. Þannig að það var eitthvað reyktjón og vatn sem hefur skemmt út frá sér en ekki annað,“ segir Stefán Kristinsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.