Einkasýning Larissu Sansour Fortíðin var aldrei, hún aðeins er, stendur yfir í Listasafni Reykjanesbæjar. Sýningin er fyrsta sýning listakonunnar á Íslandi.
Jonatan Habib Engqvist er sýningarstjóri. Hann er alþjóðlegur, sjálfstætt starfandi sýningarstjóri og höfundur, búsettur í Stokkhólmi. Jonatan er vel þekktur á Íslandi fyrir sýningaverkefni og hefur starfað með mörgum íslenskum listamönnum á alþjóðlegum vettvangi.
Larissa Sansour (1973) er palestínsk-danskur myndlistarmaður sem hefur hlotið lof á alþjóðavísu fyrir áhrifamiklar kvikmyndainnsetningar. Hún hefur sýnt í þekktum listasöfnum á borð við MOMA í New York og Tate Modern í London. Árið 2016 hlaut hún verðlaun alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Guanajuato (GIFF) fyrir bestu tilraunastuttmyndina, In the Future They Ate From the Finest Porcelain (2016). Þremur árum síðar, árið 2019, var hún fulltrúi Danmerkur á 58. Feneyjatvíæringnum í myndlist.
Á sýningunni í Reykjanesbæ eru tvær vídeóinnsetningar, In Vitro og As if No Misfortune Had Occurred in the Night og nýjar ljósmyndir sem eru úr In Vitro og tengja innsetningarnar tvær saman. Titill sýningarinnar er úr senu af neðanjarðarspítala í In Vitro, en þar segir: Fortíðin var aldrei, hún aðeins er. Þessi augnablik munu einnig hverfa. Þegar okkar tími kemur, verður sá tími ekki lengur okkar…
In Vitro var sýnt í danska skálanum á Feneyjum 2019. Verkið gerist eftir umhverfishörmungar í yfirgefnum kjarnaofni undir biblíubænum Betlehem, sem breytt hefur verið í gríðarstóran aldingarð. Hópur vísindamanna hyggst fara upp á yfirborðið og sá fræjum sem gengið hafa kynslóða á milli til að endurrækta jörðina.
Larissa Sansour hefur kallað verk sitt As If No Misfortune Had Occured in the Night (2022) „sviperfðabreytingaóperu“, þar sem sögur af erfðum áföllum leiftra á milli mynda úr fyrri heimsstyrjöld. Palestínska söngkonan Nour Darwish syngur þar aríu, sem er ýmist á hversdagslegri eða klassískri arabísku. Hún er samin af Anthony Sahyoun og byggir á Kindertotenlieder eftir Gustav Mahler frá 1904, sem fjallar um barnsmissi, og palestínska þjóðlaginu Mashaal, þar sem kona harmar herkvaðningu ástvinar síns. Söngkonan sökkvir sér ofan í indígóbláa sorgarlaug og hvítur kjóll hennar tekur í sig lit sorgarinnar.
Ljósmyndaserían á sýningunni sýnir umhverfi og nunnu með gasgrímu á strætum Betlehem. Myndirnar eru teknar við gerð In Vitro og mynda brú á milli innsetninganna.
„Larissa sækir í palestínska sagnabrunna og myndirnar eru á arabísku og þar eru konur í forgrunni. Larissa er meðal annars að fjalla um missi, sorg og vald og hrikalega hluti eins og ofbeldi og stríð. Verk hennar sýna mögulega mótspyrnu við handahófskennd landamæri og vistmorð. Um leið velta verk hennar upp mögulegri framtíðarsýn,“ segir sýningarstjórinn Jonatan Habib Engqvist. „Mér finnst spennandi hvernig Larissa vinnur með vísindaskáldskap í verkum sínum og beinir sjónum að því sem er að gerast og því sem hefur gerst.“
Jonatan segir sýningu Larissu Sansour vera stærsta verkefni sem Listasafn Reykjanesbæjar hafi ráðist í. „Það er stórkostlegt að okkur hafi verið treyst fyrir þessu. Reykjanes er rétti staðurinn til að sýna þessi verk því það er fjölbreyttasta íbúabyggð landsins, með innflytjendum og flóttamönnum frá fjölmörgum löndum. Landslagið hefur þolað jarðskjálfta og eldgos síðustu ár og er eins og úr vísindaskáldskap. Þarna var amerískur her sem skildi eftir sig alls kyns leifar, allt frá neðanjarðarbyrgjum til yfirgefinna bygginga og urðaðra tunna sem eru fullar af óþekktum efnaúrgangi. Í þessu landslagi er stemning sem endurspeglast í verkum Larissu.“
Verk listakonunnar njóta sín vel í stóru sýningarrými listasafnsins. „Sýningarrýmið er ótrúlega fallegt og voldugt og þar var hægt að setja upp 8x3 metra skjá, sem er alveg einstakt,“ bætir Jonatan við.
Stefnt er að sýningum á fleiri kvikmyndum Larissu Sansour og samtali Jonatan Habib Engqvist sýningarstjóra síðustu sýningarhelgina þann 17. ágúst í Hljómahöll í Keflavík.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.