Vinstrihreyfingin – grænt framboð fordæmir loftárásir Bandaríkjanna á Íran í nótt, segir þær atlögu að alþjóðalögum og brot á þjóðarétti, þar með töldum Sáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem stjórn hreyfingarinnar sendi frá sér.
Er þess krafist að ríkisstjórn Íslands fordæmi allar árásir sem eru grundvallaðar á valdbeitingu gegn fullvalda ríki, krefjist diplómatískra aðgerða og auki stuðning við mannúðar- og þróunarsamvinnu í Mið-Austurlöndum.
„Alþjóðlegur samtakamáttur og virðing fyrir mannréttindum þurfa að ráða för við lausn á átökum, ekki valdbeiting og ólögmætar hernaðaraðgerðir,“ segir í yfirlýsingunni.
Þá lýsir VG miklum áhyggjum yfir aukinni spennu í Mið-Austurlöndum og telur að árásir Bandaríkjanna á Íran í nótt muni enn magna átök í heimshlutanum og leiða til enn meiri hörmunga.