Innkalla geislavirka límmiða

Límmiðarnar innihalda geislavirkt efni.
Límmiðarnar innihalda geislavirkt efni. Ljósmynd/Geislavarnir ríkisins

Geislavarnir ríkisins vekja athygli á innköllun á límmiðum sem innihalda geislavirkt efni. Um er að ræða vöruna Quantum Shield – Nano technology, límmiða sem framleiddir eru af Fan Yun Craft Electronics Co í Kína, og seldir voru undir því yfirskini að verja fólk gegn 5g-geislun.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Geislavarna ríkisins.

Fólk sem hefur slíka límmiða undir höndum er beðið um koma með þá til Geislavarna ríkisins, en ekki má farga þeim með venjulegu heimilissorpi.

Samtals voru 30 stykki flutt inn og voru límmiðarnir til sölu í versluninni JK vörur á tímabilinu frá júlí til desember árið 2023. 

Innflutnings- og söluaðili hefur innkallað límmiðana en ekki hefur öllum seldum vörum verið skilað til baka. Þá hefur fólk mögulega keypt límmiðana annarstaðar, t.d. eru þessir límmiðar til sölu á AlExpress og Temu.

Geislavarnir ríkisins ráðleggja þeim sem eiga þessar vöru að hætta að nota þær og koma með vöruna til Geislavarna ríkisins að Rauðarárstíg 10, 4. hæð. 

Varan hefur verið tilkynnt í evrópska tilkynningakerfinu Safety Gate.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »