Tugir grindhvala strand í Ólafsfirði

Tugir grindhvala eru strand í Ólafsfirði.

Hinrik Wöhler, staðgengill upplýsingafulltrúa Landsbjargar, segir björgunarsveitir á Tröllaskaga og Akureyri hafa verið boðaðar út.

Þær vinni í þessum töluðu orðum að því að koma hvölunum aftur á flot og út á sjó.

Hinrik segir um talsverðan fjölda hvala að ræða, en að aðgerðum björgunarsveitarinnar miði vel áfram.

Uppfært klukkan 19:02:

Aðgerðum björgunarsveita við Ólafsfjörð er lokið. Þær gengu vel, og rétt fyrir klukkan sjö höfðu björgunarsveitir komið hvölunum úr fjörunni og aftur út á haf.

Hinrik segir að á fimmta tug grindhvala hafi verið strand þegar mest stóð.

Grindhvalir strönduðu í Ólafsfirði.
Grindhvalir strönduðu í Ólafsfirði. Ljósmynd/Björn Andri Sigfússon
Ljósmynd/Björn Andri Sigfússon
Björgunarsveitarliðar vinna að því að koma hvölunum aftur út á …
Björgunarsveitarliðar vinna að því að koma hvölunum aftur út á haf. Ljósmynd/Björn Andri Sigfússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »