Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt fyrir klukkan 13 í dag vegna göngumanns sem var í sjálfheldu í um 1.300 metra hæð í fjallinu Bónda skammt frá Hrafnagili. Maðurinn var orðinn kaldur og hrakinn.
Þetta segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við mbl.is.
Ásgeir segir að þyrlusveit gæslunnar hafi verið stödd á Akureyri þegar útkallið barst til að taka þátt á flugdeginum sem fer þar fram í dag.
Þyrlan er um þessar mundir stödd á Akureyrarflugvelli þar sem hún undirbýr sig fyrir útkallið.
Aðspurður segir Ásgeir að ekki liggi fyrir hvort maðurinn þurfi á læknisaðstoð að halda.