Í dag eru liðin 110 ár frá því að þjóðfáni Íslands var staðfestur með sérstakri tilskipun Kristjáns 10. Danakonungs, sem og að kosningaréttur var gerður almennur bæði fyrir karla og konur.
Með fánatilskipun konungs var loks útkljáð fánamálið, sem hafði þá verið í deiglunni árin á undan, en hönnun fánans var sem kunnugt er valin, þrátt fyrir að flestir Íslendingar hefðu frekar kosið „hvítbláin“ sem Einar Benediktsson skáld hafði lagt til.
Á sama degi gengu einnig í gildi breytingar á stjórnarskránni frá 1874, þar sem m.a. ráðherrum var fjölgað og tilhögun kosninga breytt.
Sú breyting sem helst er minnst í dag er þó breytingin um kosningarétt, en þar var kveðið á um að hann skyldu hafa konur og karlar eldri en 25 ára, þó með ýmsum skilyrðum.
Lesa má nánar um málið á bls. 22 og 28 í Morgunblaðinbu og í Mogga-appinu í dag.