Tvöföld þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra telur að nú sé góður tími til að leiða það mál í jörð hvort að fólk vilji halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. 

„Við þurfum að fá bara já og nei við þessari spurningu fram. Síðan getum við tekið samtalið. Er þetta eitthvað sem við viljum sjá. Lítur samningurinn út eins og við getum sætt okkur við. Erum við í sterkri stöðu? Ég held að við eigum að fara inn í slíkar viðræður þegar við erum stór, sterk og getum staðið á okkar og erum ekki á hnjánum. Getum selt okkur dýrt. Getum varið hagsmuni Íslands. Getum gert okkur eitthvað sem Evrópusambandið vill.“

Mögulegar aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið bar á góma í Dagmálsviðtali, þar sem Kristrún var gestur þáttarins.

Hún segist vilja tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. „Ég vil byrja á réttum enda. Það tekur pláss og súrefni að fara í svona viðræður. Þú gerir það ekki af hálfum hug. Þú gerir það ekki án stuðnings þjóðarinnar. Þetta snýst um að kjósa um að vera með valkosti. Vill fólk kjósa um þennan valkost. Það er ekki að kjósa um inngöngu í Evrópusambandið. Það er að kjósa um, vill það hafa þennan valkost.“

„Ég mun hlusta á þjóð mína“

Kristrún segist alltaf hafa verið þeirrar skoðunar að það þurfi tvöfalda atkvæðagreiðslu.

„Ég held að það hafi vantað hjá síðustu ríkisstjórn sem fór fram með þetta mál. Ég held að það skipti máli að fá þennan þjóðarvilja fram. Viljið þið halda þessum valkosti áfram til streitu? Viljið þið klára málið? Ég held að við séum í sterkri stöðu núna til að fara í aðildarviðræður og þess vegna held ég að þetta sé góður tími. En ég mun hlusta á þjóð mína. Ég mun auðvitað hlusta á þjóð mína. Það er ekki svo að þetta sé að eina jákvæða sem getur gerst á Íslandi,“ segir Kristrún.

„Það er hins vegar margt gríðarlega jákvætt við Evrópusambandið en við þurfum bara að gæta okkar hagsmuna. Íslendingar og fólkið sem hér býr verður að trúa því og treysta mér og þessari ríkisstjórn til þess að berjast bara ötullega fyrir okkar hagsmunum ef við förum í slíkar aðildarviðræður. Þess vegna erum við að biðja um umboð. Treysta þau okkur til slíkra verka? Já eða nei. Um það snýst þessi atkvæðagreiðsla. Hún snýst ekki um viltu inn í Evrópusambandið. Sú umræða verður tekin þegar við höfum umræðugrundvöll.“

Þáttinn í heild sinni geta áskrifendur nálgast með því að smella á linkinn hér að neðan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »