Þrír íslenskir ríkisborgarar í Ísrael hafa látið vita af sér. Þar af er einn ferðamaður. Þeir höfðu samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins.
Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn mbl.is til utanríkisráðuneytisins þar sem spurt var út í Íslendinga í Ísrael og Íran.
Í svarinu kemur fram að flestir Íslendingar sem staðsettir eru í Ísrael búi á staðnum og þekki því til aðstæðna þar í landi.
Vegna átaka Ísraela og Írana hvatti utanríkisráðuneytið á föstudag Íslendinga í löndunum tveimur til að láta aðstandendur vita af sér, en hafa samband við neyðarnúmer borgaraþjónustunnar ef aðstoðar væri þörf.
Engar umræður um brottflutning frá Ísrael hafa átt sér stað hingað til, að því er segir í svari ráðuneytisins. „Lofthelgin er auk þess lokuð og því ekki hægt að fara úr landi. Flestar landleiðir virðast einnig lokaðar,“ segir í svarinu.
Óvíst er að brottflutningur verði mögulegur og er fólk því hvatt til þess að koma sér sjálft frá Ísrael þegar möguleiki opnast ef það telur öryggi sínu ógnað.
Í svarinu kemur fram að utanríkisráðuneytið gefi sjaldan frá sér ferðaviðvaranir en bendi þess í stað á viðvaranir samstarfsríkja. „Sum Norðurlandanna hafa til að mynda breytt ferðaviðvörunum sínum til Ísrael og ráðið frá öllum ferðum þangað,“ segir í svarinu.