„Verið velkomin í VIP-röðina“

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Hákon Pálsson

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í ræðu á Alþingi í dag að þingmenn ættu að virða þagnarskyldu sína. Þar gagnrýndi hann Víði Reynisson, formann allsherjar- og menntamálanefndar, fyrir að hafa upplýst Útlendingastofnun um stöðu máls Oscars Bocanegra hvað umsókn hans um íslenskan ríkisborgararétt varðar.

„Hér kristallast að einhverjir fái forréttindi. Verið velkomnir í VIP-röðina,“ sagði Jón í ræðu sinni.

Geðþóttaákvörðun

„Hér er tekin geðþóttaákvörðun sem gengur gegn lögum og jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Þetta er samkvæmt þingskapalögum þagnarskyldubrot sem gæti varðað við hegningarlög, eins og segir í 52. gr. þingskapalaga:

„Þingmaður hefur þagnarskyldu um upplýsingar sem hann hefur fengið í starfi sínu ef þær eiga að fara leynt samkvæmt lögum eða lögmætri ákvörðun þess sem veitir upplýsingarnar, sbr. 136. gr. almennra hegningarlaga,“ sagði Jón í ræðu sinni.

Hann sagði málið ekki hafa neitt að gera með einstaklinginn, „ enda má vel vera að það sé gott og blessað að hann fái ríkisborgararétt. Ég geri engar athugasemdir við það í sjálfu sér,“ sagði Jón Gunnarsson. 

Jón sagðist hins vegar „gera alvarlegar athugasemdir við það að formaður allsherjar- og menntamálanefndar finni sig knúinn til að reyna að hafa áhrif á ákvarðanir Útlendingastofnunar með því að leka upplýsingum úr nefndinni og brjóta þar með lög. Til þess eins að mál sem er ríkisstjórninni óþægilegt hverfi.“

Kristallist að einhverjir fái forréttindi

„Það má hafa samúð með þeim einstaklingum sem hér eiga undir en við höfum lög í landinu sem ber að fylgja í þessu máli sem öðrum, ég hef áður gert athugasemdir við vinnulag þingsins um veitingu ríkisborgararéttar. Hér kristallast að einhverjir fái forréttindi. Verið velkomnir í VIP-röðina,“ sagði Jón.

„Ég á þetta, ég má þetta“

„Kvöldið áður en þessi galna tilkynning kom fram hafði dómsmálaráðherra réttilega hafnað því að fylgja ekki lögum ef meirihlutinn var svona ákveðinn í því að veita þessum einstaklingi ríkisborgararétt,“ sagði Jón í ræðunni.

Hann sagði að þeim hefði verið í lófa lagið að leggja fram rökstutt frumvarp og fara með það í flýtimeðferð.

„Verkstjórninni liggur svo mikið á að víða er mikið uppnám,“ sagði Jón.

„Nú er krafa okkar að ríkisstjórnin og ríkisstjórnarflokkarnir fari að vinna samkvæmt lögum og hætti að haga sér undir þeim formerkjum: Ég á þetta, ég má þetta,“ sagði Jón Gunnarsson á Alþingi í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »