Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA segir stofnunina búa yfir gögnum sem sanni að árásir Bandaríkjamanna á kjarnorkuinnviði Írans hafi valdið verulegum skaða. Stjórnvöld í Íran hafa einnig viðurkennt að skaðinn sé mikill.
John Ratcliffe, forstjóri bandarísku njósnaþjónustunnar, segir að lykilstaðir hafi verið eyðilagðir, þó að hann gangi ekki svo langt að lýsa því yfir að kjarnorkuáætlun Írans hafi verið útrýmt algjörlega.
„CIA getur staðfest að trúverðugar upplýsingar benda til þess að kjarnorkuáætlun Írans hafi orðið fyrir alvarlegu tjóni vegna nýlegra, markvissra árása. Þetta felur í sér nýjar upplýsingar frá sögulega áreiðanlegum og nákvæmum upplýsingaveitum/aðferðum sem sýna að nokkrar lykilkjarnorkustöðvar Írans hafi verið eyðilagðar og myndi taka nokkur ár að endurbyggja,“ segir í yfirlýsingunni.
Skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar varnarmála (DIA) var lekið í fjölmiðla í gær og samkvæmt fyrstu fregnum frá fjölmiðlum vestanhafs þá fullyrti skýrslan að Bandaríkin hefðu aðeins tafið kjarnorkuáætlun Írana um nokkra mánuði.
Aftur á móti fylgdi ekki fyrstu fréttum að það mat sem kom fram í skýrslunni væri byggt á „litlum áreiðanleika.“
Nokkrum tímum eftir að skýrslan kom út var Esmaeil Baqaei, utanríkisráðherra Írans, í viðtali hjá Al Jazeera þar sem hann viðurkenndi að skaðinn væri mikill.
„Kjarnorkumannvirki okkar hafa orðið fyrir miklum skemmdum, það er víst, því þau hafa orðið fyrir endurteknum árásum ísraelskra og bandarískra árásaraðila,“ sagði Baqaei við fréttastofuna.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hafnað fréttum um að Bandaríkjamenn hafi ekki náð markmiðum sínum um að leggja í rúst Isfan, Natans og Fordo alveg eins og aðrir háttsettir embættismenn Bandaríkjanna.
Hann hefur gefið það út að Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, og aðrir háttsettir menn í hernum muni halda „áhugaverðan og óhrekjanlegan“ blaðamannafund í dag.