Sendi Trump hálfgert ástarbréf fyrir fundinn

Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO.
Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO. AFP

Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sendi Donald Trump Bandaríkjaforseta smjaðursleg skilaboð fyrr í dag þar sem hann kallaði aðgerðir forsetans í Íran „sannarlega ótrúlegar“. Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins hefst í Haag í Hollandi í kvöld.

„Kæri forseti, kæri Donald, hamingjuóskir og takk fyrir þínar ákveðnu aðgerðir í Íran, þetta var sannarlega ótrúlegt og eitthvað sem enginn annar hefur þorað að gera. Við erum öll öruggari fyrir vikið.“

Svona hófust skilaboð Rutte til Trumps sem forsetinn birti á eigin samfélagsmiðli, Truth Social, fyrr í dag. Vísar Rutte þarna til þess að Bandaríkin hafi staðið að vopnahléssamningi á milli Íran og Ísraels í kjölfar ellefu daga átaka á milli landanna þar sem Bandaríkin skárust í leikinn og sprengdu mikilvæg kjarnorkuinnviði í Íran.

Flýgur í átt að öðrum sigri

Næst beindi Rutte tali sínu að leiðtogafundinum sem hefst í kvöld í Haag en fyrir fundinn hefur Trump lagt áherslu á að öll ríki NATO samþykki að eyða 5% af ríkisútgjöldum í varnarmál.

„Nú flýgur þú í átt að öðrum sigri í Haag í kvöld. Það var ekki auðvelt en þú hefur fengið þau öll til að samþykkja fimm prósentin!

Donald, þú hefur komið að okkur að virkilega virkilega mikilvægu augnabliki fyrir Ameríku og Evrópu, og heiminn. Þú munt afreka eitthvað sem að engum Bandaríkjaforseta hefur tekist áratugum saman,“ skrifaði Rutte.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »