Þökk sé gervigreindinni geta gestir Versalahallar nú rætt beint við stytturnar í hallargarðinum, í stað þess að hlusta á hefðbundna leiðsögn í heyrnartólum.
Greint var nýlega frá samstarfi Versala við OpenAi í Bandaríkjunum og franska sprotafyrirtækið Ask Mona til að koma nútímalegri tækni inn í höllina, sem var upprunalega byggð á 17. öldinni.
Gestir geta nú skannað QR-kóða við 20 styttur í hallargarðinum og hafið samtal um sögu hallarinnar, á ensku, frönsku eða spænsku.
„Versalahöllin er að prófa sig áfram með gervigreindina, geta hennar mun dýpka reynslu gestanna svo um munar,“ sagði Christophe Leribault, safnstjóri hallarinnar.
Um átta milljónir gesta heimsækja safnið ár hvert og hafa fyrirtækin tvö sagt það hinn fullkomna stað til að sýna og þróa áfram gervigreindina.
„Hvort sem þú ert sérfræðingur, safnstjóri eða gestur sem heimsækir hallargarðinn í fyrsta skipti, þá er eitthvað þarna fyrir alla,“ sagði Julie Lavet, yfirmaður hjá OpenAi.
Marion Carre, forstjóri Ask Mona, sagði samstarfið vera tækifæri til að þróa áfram þá eiginleika gervigreindarinnar sem hafa verið minna rannsakaðir en aðrir.
„Oft, þegar við hugsum um gervigreind, hugsum við um hana í tengslum við skilvirkni en hér er hún meira að ýta undir forvitni,“ sagði Carre.