Tæplega þrítugur maður í norsku höfuðborginni Ósló lést í gær í kjölfar þess er vörubifreið og rafmagnshlaupahjóli, er maðurinn ók, laust saman á Karihaugen í austurborginni og eru banaslys, þar sem hjól þessi koma við sögu, þar með orðin þrettán í Noregi frá árinu 2020 að telja.
Árið 2021, ári áður en reglur um notkun hjólanna, meðal annars með tilliti til áfengisneyslu, voru stórhertar, meðhöndlaði læknavaktin í Ósló einni 1.900 líkamstjón sprottin af slysum og óhöppum á hjólunum. Höfðu læknar þá ritað borgaryfirvöldum hálfgerða bænaskrá þar sem þeir sögðu farir sínar í meira lagi ósléttar þar sem varla var flóafriður fyrir lemstruðum ökumönnum hjólanna og meiðsli annarra farin að sitja á hakanum.
Eftir því sem Odd Rusten, deildarstjóri við lögregluembættið í Ósló, segir norska ríkisútvarpinu NRK af banaslysinu í gær var sjúkrabifreið komin á vettvang örskömmu eftir að tilkynning barst um slysið. Lífi knapa rafmagnshjólsins hafi hins vegar ekki orðið borgið þrátt fyrir bestu tilraunir sjúkraflutningamanna.
Segir hann ökumann vörubifreiðarinnar hafa hlotið þá áfallaaðstoð lögreglu og heilbrigðisstarfsfólks er unnt var að veita, en eftir það verið fluttur til yfirheyrslu.
Eftir upplýsingum lögreglu að dæma varð slysið þegar ökumaðurinn hugðist aka inn á bifreiðastæði byggingarvöruverslunar við Karihaugveien. „Það sem gerðist í kjölfarið mun rannsókn málsins leiða í ljós,“ segir Rusten við NRK.