Notuðu vopn frá Íran og N-Kóreu: Minnst sjö létust

Slökkviliðsmaður athafnar sig fyrir utan íbúðabyggingu í Kænugarði.
Slökkviliðsmaður athafnar sig fyrir utan íbúðabyggingu í Kænugarði. AFP

Minnst sjö létust er Rússar gerðu dróna- og eldflaugaárás á Kænugarð í nótt. Meðal annars var hluti íbúðabyggingar eyðilagður.

Í Kænugarði var ráðist á fimm íbúðabyggingar og tilkynnt hefur verið um sex látna. Einn lést þá í Bila Tserkva, í nágrenni Kænugarðs þegar dróni hæfði spítala.

Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, vekur athygli á því á samfélagsmiðlum að Rússar hafi notað rússnesk íranska árásardróna til verksins og setur það í samhengi við árás Bandaríkjahers á kjarnorkuinnviði í Íran.

Fólk enn fast undir rústunum

Ihor Klímenkó, innanríkisráðherra Úkraínu, sagði á samfélagsmiðlum að auk íbúðahverfa, og spítala hafi verið ráðist á íþróttainnviði í nótt.

„Heill hluti íbúðabyggingar var eyðilagður í hinu verst farna Shevchenkivskyi-hverfi,“ sagði Klímenkó.

Hann sagði fólk enn fast undir rústunum.

Selenskí sagði 352 dróna og 16 eldflaugum verið beint að Úkraínu í nótt. 159 drónanna hafi verið hannaðir í Íran. Þá segir hann að bráðabirgðaathugun bendi til að einnig hafi verið notast við vopn frá Norður-Kóreu.

BBC

Fréttin hefur verið uppfærð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »