Gervihnettir í hættu skelli loftsteinn á tunglið

Tunglið í fullum skrúða á himinhvolfinu.
Tunglið í fullum skrúða á himinhvolfinu. AFP

Ef risastór loftsteinn skellur á tunglið árið 2032 myndi gríðarleg sprenging senda brak í átt að jörðinni sem myndi ógna gervihnöttum og valda meiriháttar stjörnuhrapi. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar.

Fyrr á þessu ári höfðu menn áhyggjur af því um stund að 60 metra breiður loftsteinn sem kallast 2024 YR4, sem er nógu stór til að jafna borg við jörðu, myndi skella á jörðinni 22. desember 2032.

Honum voru gefnar mestu líkurnar, eða 3,1 prósent, á að hæfa jörðina, sem er hæsta hlutfall sem vísindamenn hafa nokkurn tímann mælt fyrir svo stóran lofstein. Seinni athuganir frá sjónaukum útilokuðu svo endanlega beinan árekstur við jörðina.

4,3% líkur á að steinninn hæfi tunglið

Hins vegar hafa líkurnar á því að hann skelli á tunglinu aukist í 4,3 prósent, samkvæmt gögnum frá James Webb-geimsjónaukanum í maí.

Ný rannsókn, sem hefur ekki verið ritrýnd, er sú fyrsta til að meta hvernig slíkur árekstur gæti haft áhrif á jörðina.

Paul Wiegert, aðalhöfundur rannsóknarinnar frá Western Ontario-háskólanum í Kanada, segir í samtali við AFP að þetta myndi verða stærsti loftsteinninn sem rekist hafi á tunglið í um 5.000 ár

Sambærilegt stórri kjarnorkusprengju

Áhrifin yrðu sambærileg við stóra kjarnorkusprengingu hvað varðar magn orku sem losnar við höggið að sögn Wiegert. Allt að 100 milljón kílógrömm af efni myndu skjótast út frá yfirborði tunglsins.

Ef loftsteinninn hitti þá hlið tunglsins sem snýr að jörðinni, sem er um það bil 50 prósenta líkur, gætu allt að 10 prósent af þessu braki dregist að jörðinni fyrir tilstilli þyngdarafls á næstu dögum á eftir, segja vísindamennirnir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »