Kveðast hafa jafnað „höfuðstöðvar almannaöryggis“ við jörðu

Reykjarmóða yfir írönsku höfuðborginni Teheran í dag, Ísraelar kveðast hafa …
Reykjarmóða yfir írönsku höfuðborginni Teheran í dag, Ísraelar kveðast hafa lagt höfuðstöðvar ríkislögreglustjóra landsins í rústir. AFP

Nokkrir eru særðir í kjölfar loftárásar Ísraelshers á höfuðstöðvar íranska ríkislögreglustjóraembættisins í dag, eftir því sem IRNA-ríkisfréttastofan í Íran greinir frá.

Segir fréttastofan frá því að nokkrar byggingar embættisins hafi orðið fyrir árásinni sem verið hafi hluti af „áframhaldandi ofstæki af hálfu hins grimmdarlega síonistaveldis“ og þar vísað til Ísraels sem réðst á Íran með herafli á föstudaginn til að hefta kjarnorkuvopnaáætlun fjenda sinna.

Rauði hálfmáninn við sömu götu

Ísraelski varnarmálaráðherrann Israel Katz hefur nú gefið út þá yfirlýsingu að her landsins hafi „lagt höfuðstöðvar almannaöryggis í Íran í rúst“ með árás sinni, „sterkasta arm íranska einræðisherrans“, en bandaríska sjónvarpsstöðin CNN, sem fjallar um árásina, vill þó ekki staðfesta þennan skilning Katz.

Áður en árásin á ríkislögreglustjóraembættið komst í hámæli greindu íranskir ríkisfjölmiðlar frá því að ísraelsk flugskeyti hefðu hæft skotmörk steinsnar frá starfsstöðvum hjálparstofnunarinnar Rauða hálfmánans, en höfuðstöðvar ríkislögreglustjórans eru við sömu götu.

CNN

The Times of Israel

The Jerusalem Post

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »