Hitabylgja er skollin á Spáni og Portúgal og hafa yfirvöld í báðum löndum gefið út viðvaranir sem tengjast hitabylgjunni.
Á Spáni hafa verið gefnar út viðvaranir í miðhluta Andalúsíu og í vesturhluta Katalóníu og í Portúgal eiga viðvaranirnar við um héruðin Évora, Setúbal og Beja í suðurhluta landsins.
Í gær var hitinn á bilinu 35 til 38 stig á nokkrum stöðum á Suður-Spáni og sums staðar í Portúgal fór hitinn í 37 gráður.
Veðurfræðingar segja að næstu daga muni hitabylgjan færast í aukana og um helgina er gert ráð fyrir að hitinn fari upp í allt að 42 gráður sums staðar í löndunum tveimur.